Aðventan er að hefjast og heilög jólahátíð framundan. Margir finna fyrir eftirvæntingu og fiðringi í maganum. Það er merkilegt hvaða tilfinningar vakna í kringum helgar hátíðir jóla.
Jólin eru alltaf á sérstakan máta tengd börnum og fjölskyldum. En þá gefum við gjarnan börnunum og fjölskyldunni tíma til samveru á nótum kærleika og friðar, og allt sem skiptir minna máli í lífi okkar fær að sitja á hakanum.

Það að gefa hvert öðru tíma skiptir miklu máli um heilög jól, sem og á öðrum tímum. Sælla er að gefa en að þiggja segir á góðum stað og er einnig dýrmætt að gefa hvert öðru gjafir. Gott er hins vegar að muna að allar gjafir jólanna vísa til þeirrar gjafar sem Jesús Kristur er okkur öllum.

Vitringarnir frá Austurlöndum, sem sagt er frá í helgu jólaguðspjalli, færðu litla Jesú barninu gull, reykelsi og myrru. Þær gjafir eru táknrænar fyrir stöðu Jesú hér í heimi. Gullið hefur verið málmur konunga um aldir. Reykelsið minnir okkur á bænina og tengslin við himininn. Smyrslið, myrran, er viðarkvoða og vísar til dauða Jesú og upprisu.

Jesús sjálfur er hins vegar dýrmætasta gjöfin og mikilvægt er að taka á móti honum í huga og hjarta, meðtaka þá náð sem heilög jól færa okkur.

Hátíðin minnir okkur einnig á þá ábyrgð að huga að öllum helgum heitum sem við höfum strengt, í lífi, leik og starfi, svo sem vinaheitum, hjónaheitum og skátaheitum.

Hin helga hátíð, okkur láti

minnast hinna dýru heita.

Eitt sinn skáti, ávallt skáti

inn til bæja og út til sveita.

Megi komandi aðventa vera öllum skátum, og öðrum bæjarbúum góður undirbúningur fyrir komandi hátíð jóla.