Kór Landakirkju æfir á fimmtudögum í kirkjunni kl. 20.00. Aukaæfingar eru á þriðjudögum kl. 20.00. Kórinn kemur fram við helstu athafnir Landakirkju svo sem Guðsþjónustur og jarðarfarir. Þar að auki stendur kórinn fyrir veglegum jólatónleikum hverja aðventu. Kórinn fer einnig í æfinga- og skemmtiferðir erlendis á nokkura ára fresti. Lifandi og skemmtilegt starf. Hafir þú áhuga á að taka þátt í starfi kórsins hafðu þá sambandi við stjórnanda kórsins, Kitty Kovács eða formanninn Jóhönnu Njálsdóttur.
Stjórn Kórs Landakirkju
Alda Jóhannsdóttir, formaður
Sigurbjörg Jónsdóttir, varaformaður
Katrín Stefánsdóttir, gjaldkeri
Guðný Bjarnadóttir, ritari
Guðrún Gísladóttir, meðstjórnandi