Boðið verður upp á 12- spora hópastarf í Landakirkju í vetur eins og undanfarin ár.

Við köllum okkur Vini í bata og vinnuna köllum við andlegt ferðalag. Þetta er fyrir alla sem vilja vinna með tilfinningar sínar af einlægni og kynnast sjálfum sér og Guði betur. Kynningarfundir eru í safnaðarheimili Landakirkju á hverju haustmisseri og eru kynntir sérstaklega. Fyrstu þrír fundirnir eru opnir öllum til þess að kynnast starfseminni og reyna aðferðina. Eftir það eru myndaðir svokallaðir fjölskylduhópar og ekki bætt við eftir það. Áhersla er lögð á nafnleynd, trúnað og traust. Nánari upplýsingar um þessa vinnu er á heimasíðu vina í bata : www.viniribata.is

Einnig má senda okkur tölvupóst ef upp vakna spurningar um Vini í bata.

Við notum vinnubók sem heitir Tólf sporin Andlegt ferðalag.

Allir velkomnir.

Vinir í bata í Vestmannaeyjum