Undanfarin ár höfum við staðið fyrir sannkallaðri jólalagasöngstund rétt fyrir jól. Í ár verður engin breyting á og verður hið svokallaða „Jólalaga Sing-along næstkomandi sunnudag kl. 13.

Það er skemmtilegt og uppbyggjandi að koma saman rétt fyrir jól og syngja jólalögin ásamt öllum góðu kórunum okkar. Tækifærum til að syngja jólalögin hefur fækkað umtalsvert á undanförnum árum og því er þetta kjörin stund til að eiga gleðilega og hátíðlega söngstund saman.

Litlu lærisveinarnir, Kór Landakirkju, Karlakór Vestmannaeyja og Kvennakór Vestmannaeyja munu jafnframt syngja jólalög úr sinni efnisskrá þannig að þetta verður heilmikil söngstund fyrir alla

Sjáumst syngjandi í kirkjunni okkar