Undanfarna daga og vikur hefur oft verið spurt hvenær sunnudagaskólinn hefji göngu sína á ný eftir sumarfrí.

Það gleður okkur að tilkynna að nú þarf ekki að bíða mikið lengur. Hann hefst aftur með fjölskylduguðsþjónustu næstkomandi sunnudag (13. september).

Við byrjum með krafti þar sem Sunday School Party Band verður á staðnum og spilar fyrir dansi, hreyfingum og ýmsu öðru. Guðsorðið verður að sjálfsögðu einnig á sínum stað ásamt sögu og bænahaldi.

Við vonumst til að sjá sem flesta leggja leið sína í kirkjuna okkar á sunnudag og hefja sunnudagaskólann af krafti.

ATH: Ekki verður messað þennan dag kl. 13. Þann 20. september færast guðsþjónusturnar okkar yfir til kl. 13 og sunnudagaskólinn heldur áfram kl. 11.

Sjáumst á sunnudag í kirkjunni okkar