Mæðradagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn í guðsþjónustu kl. 11.

Undanfarin ár hefur mæðradagurinn verið messudagur Oddfellow-systra við góðan orðstír.  Líkt og í fyrra munum við hins vegar víkka þennan dag út enn meira og bjóða sérstaklega öllum kvenfélögum og öðrum kvennahópum og að sjálfsögðu öllum mæðrum. Áfram munu Oddfeloow-systur þó sjá um ritningarlestra.

Athöfnin verður hugljúf þar sem sungnir verða sálmar eftir konur og glaðst yfir mæðrum þessa heims og gjöfum þeirra. Sr. Viðar mun þjóna og prédika og Kór Landakirkju leiðir söng undir stjórn Matthíasar Harðarsonar sem leysir Kitty af núna um helgina.

Sjáumst á mæðradaginn í kirkjunni okkar.