Að vanda er uppstigningardagur messudagur eldri borgara í kirkjum landsins og að því tilefni eru eldri borgarar sérstaklega velkomnir til Guðsþjónustunnar í Landakirkju þann dag. Fer hún fram á uppstigningardag fimmtudaginn 9. maí kl. 11:00. Sönghópur eldri borgara kemur fram og leiðir sönginn og sr. Guðmundur Örn leiðir messuna. Kvenfélag Landakirkju bíður svo til vöfflukaffis að lokinni athöfn.

Allir velkomir eins og alltaf og þá sérstaklega eldri borgarar.