Í febrúar höfum við hrundið af stað verkefninu Fönký febrúar og af þeim sökum verður engin hefðbundin messa í febrúar heldur hver og ein með sitt þema. Fyrsta messan í því verkefni er á morgun, prjónamessa.
Við munum prjóna til stuðnings Gleym mér ei, styrktarfélags sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Þetta verður hugljúf stund og mun minna eilítið á húslestur.
Hvetjum sérstaklega alla prjóna- og saumaklúbba hér í Eyjum að mæta (með prjóna) og láta gott af sér leiða.
Sunnudagaskólinn verður að sjálfsögðu einnig á sínum stað.
Sjáumst á morgun í kirkjunni okkar ❤