Kyrrðarbænastundir fara fram í Landakirkju á þriðjudögum í vetur. Stundirnar hefjast kl. 17:00 og fer fyrsta stundin fram þriðjudaginn 12. september.

Kyrrðarbæn er nútíma heiti fyrir þá aðferð sem Jesús talar um í Fjallræðunni. Hann boðar að: „En þegar þú biðst fyrir skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn sem er í leynum“ (Matt.6.6). Í tímanna rás hefur þessi bænar aðferð verði nefnd ýmsum nöfnum eins og t.d. pure prayer, prayer of the heart, prayer of simplicity, prayer of faith o.s.frv.

Kyrrðarbæn er einstök og persónubundin aðferð sem býr okkur undir það að vera opin gagnvart Guði. Henni er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir aðrar bænir heldur má segja að Kyrrðarbænin auki dýpt þeirra. Í henni játumst við nærveru og verkan Guðs innra með okkur. Sá ásetningur getur síðan opnað augu okkar og skerpt athygli okkar á því að skynja nærveru hans á öllum tímum og í allri sköpun hans.