Landakirkja býður bæjarbúum á árlegt jólaball sitt fimmtudaginn 29. desember nk. kl. 16:00.

Tríó Þóris Ólafssonar ásamt gestum leikur létt jólalög á meðan dansað er í kringum tréð í safnaðarheimilinu.

Kvenfélag Landakirkju hellir upp á og býður ungum sem öldum upp á létt góðgæti.