Í ljósi hertra aðgerða stjórnvalda við heimsfaraldrinum, sem miðast við 20 manna samkomutakmörk, þurfum við enn á ný að laga starfsemi kirkjunnar að þeirri stöðu sem uppi er í samfélaginu.

  • Barna- og æskulýðsstarf barna sem fædd eru 2005 og síðar heldur áfram, að teknu tilliti til allra sóttvarnarreglna sem í gildi eru.
  • Allt opið helgihald í Landakirkju fellur niður í október. Þetta á við sunnudagaskólann kl. 11.00 og sunnudags guðsþjónustur kl. 14.00.
  • Almennar kóræfingar falla niður í október.
  • Eldriborgarastarf fellur niður, þ.m.t. helgihald á Hraunbúðum.
  • Allir fundir, ráðstefnur og samverur í safnaðarheimilinu falla niður.
  • Við skírnir og hjónavígslur gildir 20 manna fjöldatakmörkun.
  • Við útfarir gildir 50 manna fjöldatakmörkun. Safnaðarheimilið mun ekki verða tiltækt fyrir erfidrykkjur eða aðrar samkomur.

Þessar ráðstafanir verða svo endurskoðaðar í samræmi við aðstæður og ákvarðanir stjórnvalda og Þjóðkirkjunnar í þessum efnum.