Sunnudaginn 24. nóvember verður einstæður viðburður í Landakirkju þegar kristnir söfnuðir í Vestmannaeyjum sameinast í messu í Landakirkju. Á undan verða tónleikar með landsþekktu listafólki sem einnig mun taka þátt í messunni ásamt kórum safnaðanna. Á eftir verður samkomugestum boðið í hátíðarkaffi í Safnaðarheimilinu.

Dagskráin hefst stundvíslega kl. 13:00 með tónleikum þar sem fram koma söngvararnir Gissur Páll, Hera Björk og gítarleikarinn Björn Thoroddsen.
Að loknum tónleikum hefst sameiginleg messa kristinna safnaða í Vestmannaeyjum. Hún byrjar með því að Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri flytur ávarp. Í messunni þjóna Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson, prestar Landakirkju, Guðni Hjálmarsson, prestur Hvítasunnukirkjunnar og Sr. Denis O´Leary, prestur Kaþólsku kirkjunnar. Mikill söngur verður í messunni þar sem Gissur Páll, Hera Björk og Björn koma fram og Kór Landakirkju og Lofgjörðarsveit Hvítasunnukirkjunnar.

Um er að ræða lokaviðburð í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarréttinda Vestmannaeyjabæjar. Að lokinni dagskrá um kl. 14:30 býður bærinn samkomugestum til kaffisamsætis í Safnaðarheimili Landakirkju.