Börn í fermingarfræðslu Landakirkju ganga í hús í Vestmannaeyjum í dag 31. október frá kl. 17:00 með bauk frá Hjálparstarfi kirkjunnar sem er merktur, númeraður og lokaður með innsigi. Börnin gefa þannig af tíma sínum til að safna fé til verkefna Hjálparstarfsins í Afríku.

Meðal þess sem börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar fá að kynnast í vetur er þróunarsamvinna og hjálparstarf á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Fermingarbörnin fá að kynnast aðstæðum sem fólkið á verkefnasvæðum býr við og rætt er um sameiginlega ábyrgð á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi.

Í kjölfar fræðslunnar ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefna sem kynnt hafa verið. Fyrir söfnunina fá börnin leiðbeiningar um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Börnunum er uppálagt að fara alltaf  tvö og tvö saman og foreldrar eru hvattir til að ganga með þeim. Börnin fá endurskinsmerki merkt Hjálparstarfi kirkjunnar til að bera á meðan fjáröflun stendur.

„Á unglingsárum þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif. Við teljum að með verkefninu gefist tækifæri til að fræða fermingarbörnin um gildi náungakærleiks á áþreifanlegan hátt. Með því skapast einnig mótvægi við síbylju neikvæðra frétta og tækifæri til að skynja að öll getum við lagt eitthvað af mörkum,“ sagði Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, við undirbúning söfnunarinnar. Börn í fermingarfræðslu hafa undanfarin tuttugu ár lagt sitt af mörkum til Hjálparstarfs með því að ganga í hús með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Framlag fermingarbarna er afar mikilvægt en í fyrra söfnuðu þau rúmum 7,8 milljónum króna með þessum hætti.

Ef þú vilt styðja söfnun fermingarbarna til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku geturðu hringt í söfnunarsíma 907 2003 og gefið 2.500 krónur eða lagt upphæð að eigin vali inn á reikning 0334-26-56200. Kennitala 450670-0499.

Unnið úr frétt á heimasíðu Hjálparstarfs kirkjunnar help.is