Núna á vorönninni bryddum við í Landakirkju upp á meira öðruvísi en gengur og gerist. Árleg Guðsþjónusta Gídeon manna verður á sínum stað sunnudaginn 17. febrúar kl. 14:00 en því til viðbótar verður boðið upp á sérstaka prjónamessu sunnudaginn 24. febrúar kl. 14:00, tölvuleikjamessu sunnudagskvöldið 3. mars og Disco messu sunnudagskvöldið 7. apríl nk. Það er því auðvelt fyrir flesta að finna eitthvað við sitt hæfi og vonum við að sem flestir nýti sér þessar ólíku og öðruvísi Guðsþjónustur.