Samkirkjuleg göngumessa verður á sunnudagsmorgun gosloka kl. 11:00. Messan hefst í Landakirkju með ávarpi presta og forstöðumanna safnaðar og bæn og að því loknu er gengið í gýg Eldfells og helgihaldinu haldið áfram þar. Endað verður í Stafkirkjunni. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács og félagar úr Lúðrasveit Vestmanneyja spila. Sóknarnefnd Landakirkju býður þátttakendum uppá kaffi og kruðerí að göngu lokinni.