Næstkomandi sunnudagskvöld, 13. nóvember kl. 20.00 verður David Bowie messa í Landakirkju. Eins og í fyrri tónlistarmessum, sem unnar hafa verið í samstarfi við ÆsLand, Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM og K í Vestmannaeyjum, verður þematónlist kvöldsins fléttað vandlega saman við lofgjörðina. íÍ þetta skiptið verður tekist á við tónlist David Bowie en Messuguttarnir og brassbandið Pípulagnirnar munu nú sem áður flytja tónlistina og þeir Sæþór Vídó, Jarl Sigurgeirsson og Ólafur Kristján Guðmundsson takast á við goðið. Sr. Guðmundur Örn mun svo flétta tónlistina saman við líðandi stund og vers dagsins í prédikuninni eins og honum einum er lagið.