Sr. Kristján Björnsson sóknarprestur okkar Eyjamanna til margra ára syngur kveðjumessu sína nk. sunnudag, 4. september kl. 11:00 í Landakirkju. Kór Landakirkju syngur undir stjórn okkar færa organista Kitty Kovács.

Sr. Kristján var skipaður sóknarprestur í Vestmannaeyjum þann 1. september árið 1998. Hann fór svo í leyfi frá Landakirkju 1. júlí 2016 til þess að sinna afleysingum í Eyrarbakkaprestakalli og hafið þá starfað sem sóknarprestur í Vestmannaeyjum í rétt tæp 18 ár. Þegar staða sóknarprests í Eyrarbakkaprestakalli var svo auglýst til umsóknar í mars sl. hreppti Kristján embættið.

Starfsfólk og sóknarnefnd Landakirkju vill óska Kristjáni áframhaldandi góðs gengis á nýjum stað og þakkar góðar stundir í gegnum árin.

Sóknarnefnd Landakirkju býður kirkjugestum til kirkjukaffis að lokinni athöfn.