Viðar Stefánsson, 26 ára gamall guðfræðingur frá Gnúpverjahreppi í Árnessýslu, hefur verið ráðinn prestur við Landakirkju, Vestmannaeyjaprestakalli frá og með 1. september 2016. Þetta var niðurstaða valnefndar sem sat að störfum í gær og tók viðtöl við þá fjóra umsækendur sem sóttu um starfið. Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands staðfesti svo val nefndarinnar fyrr í dag.

Viðar hefur starfað sem leiðtogi í barnastarfi m.a. í Skálholti og í Áskirkju í Reykjavík og hefur starfað sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ undanfarna mánuði. Þessa stundina leggur hann stund á sálgæslufræði á framhaldsstigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Um leið og við bjóðum Viðar velkomin til starfa þökkum við Sr. Úrsúlu Árnadóttur fyrir velunnin störf en hún hefur leyst af í Landakirkju frá því síðastliðið haust. Störf sín hefur hún unnið af alúð og myndugleika.