Núna á sunnudaginn þann 24. apríl verður árleg Vorhátíð Landakirkju haldin hátíðleg. Sunnudagaskólasöngurinn og sagan verða á sínum stað en einnig munu þátttakendur í Kirkjustarfi fatlaðra syngja lag og Kór Landakirkju undir stjórn Kitty Kovács flytja sálma. Sr. Úrsúla Árnadóttir mun leiða stundina ásamt Gísla Stefánssyni og Jarli Sigurgeirsyni sem munu munda gítarana.

Að stundinni lokinni verður öllum vorhátíðargestum stemmt út og þar boðið upp á leiki fyrir börnin og grillaðar pulsur sem eru að sjálfssögðu reiddar fram að sóknarnefnd Landakirkju eins og vant er. Það skal taka skýrt fram að ekki verður boðið upp á grillaðar pylsur því svoleiðis er nátturulega ekki til eins og flestir vita.