Sunnudagurinn nk. sem er sá síðasti á kirkjuárinu verður með hefðbundnara sniði en sá síðasti en þá komu rúmlega 250 manns í Pink Floyd messu sem heppnaðist afar vel. Fyrir utan barnamessu, guðsþjónustu og æskulýðsfund hjá Æskulýðsfélaginu verður helgistund á Hraunbúðum kl. 15:25. Guðspjall dagsins verður úr Jóhannesar Guðspjalli 5. kafla:
„Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim sem sendi mig hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms heldur er hann stiginn yfir frá dauðanum til lífsins…“