Nk. sunnudagur, sá 21. eftir þrenningarhátíð í Landakirkju verður sem hér segir.

Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Söngur, gleði, leikrit fermingarbarna og saga í hæsta gæðaflokki. Sr. Guðmundur og Jarl sjá um stundina.

Messa kl. 14:00. Fermingarbörnin lesa upp úr Heilagri ritningu. Sálmasöngur  er í höndum Kórs Landakirkju undir stjórn Kitty Kovács og sr. Kristján Björnsson prédikar.

Æskulýðsfundur kl 20. Leikir og fjör undir stjórn Æskulýðsfulltrúa. Leiðtoginn Erlingur Orri Hafsteinsson hugleiðir.