Söfnun Þjóðkirkjunnar til kaupa á línuhraðli á Landsspítala hefur borist
til Eyja með hádegisgöngu á Heimaklett. Til að vekja athygli á þessari
söfnun, sem Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands hratt af stað fyrr á
þessu ári, hefur sr. Þorgrímur Daníelsson hafið göngu á 30 tinda í
ágúst. Heimaklettur var sjálfkjörinn og óskar sr. Þorgrímur eftir fylgd
og leiðsögn á Heimaklett. Gangan hefst kl. 12 miðvikudaginn 7. ágúst og
ef vel gengur og tími vinnst til hefur hann hug á að ganga á Eldfell og
Helgafell í framhaldi af göngunni á Heimaklett.

Sr. Þorgrímur er sóknarprestur á Grenjaðarstað í Aðaldal. Hann hyggst
ganga alls á þrjátíu fjöll og/eða tinda í ágúst til að vekja athygli á
Landspítalasöfnun þjóðkirkjunnar. Línuhraðallinn er mjög dýrt geislatæki
sem notað er við krabbameinslækningar á Landspítalanum. Þau tæki sem nú
eru í notkun eru komin til ára sinna og bila oft. Með áskorun sinni við
tindana vill Þorgrímur hvetja landsmenn til að leggja söfnuninni lið,
söfnunarreikningur Þjóðkirkjunnar er 0301-26-050082, kt. 460169-6909.
Hægt verður að fylgjast með ferðum sr. Þorgríms á Facebook- síðunni “30
Tindar í ágúst”. Þorgrímur mun ganga á fjöll víða um land og hægt
verður að slást í för með honum. Nánar um það á síðunni og þar má
einnig finna upplýsingar um hvernig fólk leggur sitt að mörkum við
söfnunina.