Litlir lærisveinar eru barnakór Landakirkju.
Kórstjóri er Kitty Kovács, organisti, og aðstoðarkórstjóri er Gísli Stefánsson, æskulýðsfulltrúi.
Æfingartímar verða kynntir nánar hér á síðunni en til að byrja með eru þeir á föstudögum kl. 13.30, fyrir yngri og eldri hópa.
Meðal verkefna fyrir áramót var að syngja á tónleiknum "Jólin allstaðar" með Regínu Ósk, Jógvan Hansen, Guðrúnu Gunnars og fleiri frábærum tónlistarmönnum á aðventunni.
Helstu verkefni eru æfingar og félagslíf, söngur í barnaguðsþjónustu og við ýmis tækifæri, bæði í kirkjunni og úti í bæ, t.d. við tendrun jólatrésins á Stakkó.
Í janúar verða Litlir lærisveinar með söng í Herjólfi á gosminningunni 23. janúar í lok göngunnar. Einnig eru þau á annan í páskum og á vorhátíðinni, auk þess að koma fram í sunnudagaskólanum af og til.




RSS