Velkominn á vefsíðu Landakirkju!
Heimasíðu Landakirkju er ætlað að opna aðgang að upplýsingum um þjónustuna og auðvelda þér að taka þátt í safnaðarstarfi og helgihaldi kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin í Landakirkju!
Fréttir og skilaboð
Meira um fjölskyldumessu á Hvítasunnudag
16. Maí. 2013 kl.21:57
Á Hvítasunnudag verður eins og greint er frá í eldri færslu messa í höndum Sr. Kristjáns Björnssonar og Kórs Landakirkju undir stjórn Kitty Kovács. Einnig mun æskulýðsfulltrúinn, Gísli Stefánsson mæta með gítarinn og leiða yngri safnaðargesti með aðstoð þeirra eldri í söng í anda sunnudagaskólans. Sjáumst heil.
Hvítasunnudagurinn í Landakirkju
14. Maí. 2013 kl.11:45
Messað verður í Landakirkju á Hvítasunnudag kl. 11:00. Sr. Kristján Björnsson predikar og kór Landakirkju undir stjórn Kitty Kovács syngur. Kl. 14:00 mun svo hópurinn halda á dvalaheimili aldraðra, Hraunbúðir og vera með helgustund þar.
Leiðtoganámskeið föstudaginn 17. maí
14. Maí. 2013 kl.11:41
Föstudaginn 17. maí nk. kl. 18:00 stendur æskulýðsfulltrúi fyrir leiðtoganámskeið fyrir ungleiðtoga Landakirkju og KFUM og KFUK í Vestmannaeyjum. Efni námskeiðisins er Biblían og hugleiðingin í kristinni trú. Nú þegar hefur fjöldi ungleiðtoga skráð þátttöku sína og verða þeir verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu með góðgæti og Guðs orði.
Messuheimsókn og tónleikar Kvennakórs Háskóla Íslands
04. Maí. 2013 kl.12:09
Kvennakór Háskóla Íslands kemur í messuheimsókn í Landakirkju sunnudaginn 5. maí kl. 11. Strax eftir hádegi, kl. 13.30 verður Kvennakórinn með tónleika í Safnaðarheimilinu. Stjórnandi Kvennakórs Háskólans er Margrét Bóasdóttir. Í messunni syngur kórinn ein fjögur lög og tekur þátt í messunni á allan hátt. Munu þær syngja niðri í kirkjunni meðan Kór Landakirkju leiðir sönginn og svörin af pöllunum undir stjórn Kitty Kovács, organista okkar. Allir eru velkomnir og hvattir til að koma á báða viðburðina, en athugið að safnað er í ferðasjóð kórsins á tónleiknum, kr. 1.500,- fyrir hvern fullorðinn, en frítt er fyrir börn.
Helgihald á skírdagskvöld, föstudaginn langa og páskadag
25. Mar. 2013 kl.11:09
Margir koma að helgihaldi Landakirkju um dymbildaga og páska, Kór Landakirkju og annað tónlistarfólk, Leikfélag Vestmannaeyja, Sóknarnefnd, starfsfólk kirkjunnar og prestar. Sungnar verða messur á skírdagskvöldi kl. 20, kl. 11 árdegis föstudaginn langa og árla dags á páskum kl. 8 með morgunverði á eftir og svo kl. 10.30 á Hraunbúðum. Hér fyrir neðan er nánari dagskrá yfir helgihaldið.



RSS