Myndir

Viðburðir

Reglulegir viðburðir

Söfnun fermingarbarna

14. Nóv. 2008 kl.09:41

Miðvikudaginn 5. nóvember gengu fermingarbörn hér í Eyjum í hús og söfnuðu fyrir vatnsbrunnum í Úganda. Það er óhætt að segja að söfnunin í ár hafi gengið vel, og raunar svo vel að nýtt söfnunarmet var slegið.
 
Upphæðin sem þau söfnuðu var 201.000. kr. Fermingarbörnunum er færðar þakkir fyrir góða frammistöðu. Það er skemmst frá því að segja að söfnunin fyrir vatnsbrunnum hefur gengið vel um allt land og stefnir í að upphæðin verði svipuð og á síðasta ári, sem einmitt var met ár, en þá söfnuðust 8 milljónir. þá má geta þess að einn vatnsbrunnur sem dugar fyrir um 1000 manns kostar á bilinu 120.000 - 150.000. En vatnstankur sem dugar í 3 - 4 mánuði fyrir nokkrar fjölskyldur kostar 45.000.