Göngumessa á goslokahátíð
03. Júl. 2012 kl.18:39
Samkirkjuleg guðsþjónusta verður á goslokahátíð, sunnudaginn 8. júlí. Hefst hún í Landakirkju kl. 11 og verður þaðan gengið að krossinum við gíg Eldfells, en messulok verða í Stafkirkjunni. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur, Kór Landakirkju syngur, Kitty Kovács leikur á orgel og píanó og Balázs Stankowsky leikur á fiðlu. Fulltrúar kirkjudeilda taka þátt í bæn og lestrum. Sr. Kristján Björnsson leiðir göngumessuna og prédikar við gíginn. Sóknarnefnd Landakirkju býður kaffi á Stafkirkjulóðinni á eftir. Munið klæðnað eftir veðri.



RSS