Sunnudagaskólinn er hvern sunnudag kl. 11 árdegis allan veturinn.

Sunnudagaskólinn í Landakirkju einkennist af brúðuleikriti fermingarbarna, biblíusögu, bænum og lifandi og skemmtilegum söng.

Prestarnir okkar hafa góða og gilda aðstoðarmenn í sunnudagaskólanum. Barnafræðarar og gítarleikarar í sunnudagaskólanum eru Gísli Stefánsson æskulýðsfulltrúi Landakirkju, Jarl Sigurgeirsson aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja og stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Leó Snær Sveinsson fyrirtækjafulltrúi Landsbankans í Vestmannaeyjum.

Á aðventunni kemur 5. bekkur með helgileik og á vormisseri koma leikskólarnir í heimsókn á sínum kirkjudögum.
Í lok apríl ár hvert er Vorhátíð Landakirkju haldin sem er uppskeruhátíð barnastarfs og almenns kirkjustarfs í Landakirkju. Hún er haldin á tíma sunnudagaskólans.[/fusion_text]