Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er hér að finna dagskrá Landakirkju yfir jól og áramót. Eins og vanalega er nóg af að taka í helgihaldinu þessi jólin. Á aðfangadag verður bænastund eins og vant er í kirkjugarðinum kl. 14.00 og messur kl. 18.00 og 23.30. Lúðrasveitin mætir svo of flytur jólalög í messunni á jóladag. Lúðrasveitin hefur leik kl. 13.00 en helgihald hefst kl. 14.00.