Árlegir jólatónleikar Kirkjukór Landakirkju verða nk. miðvikudagskvöld, 14. desember og hefjast kl. 20:00. Dagskráin verður sneisafull af hátíðlegum og hrífandi jólalögum líkt og undanfarin ár en kórinn hefur verið við stífar æfingar fyrir þetta tilefni frá því snemma í haust. Tónleikarnir eru tvískiptir rétt eins og undanfarin ár en dagskráin hefst í sal safnaðarheimilis Landakirkju og líkur svo upp í Landakirkju. Einsöngvararnir Einar Clausen og Elísa Elíasdóttir eyjamær koma fram með kórnum sem er dyggilega stýrt af Kitty Kovács organista Landakirkju. Miðaverði hefur verið stillt í hóf en það er litlar kr. 2.500 fyrir þessa tónlistarveislu.